ღ Lovísa ღ Aníta ღ Kristín Erna ღ Andrea ღ Eva María ღ

www.blog.central.is/sneeze

06.11.2007 17:25:14 / sneeze

Myndir

Myndirnar verða hérna framvegis, allavega í einhvern tíma :D

 www.picasaweb.google.com/sneeze91

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 18:43:47 / Eva María

Blogg !

Það er alveg ótrúlegt hvað þessar helgar eru fljótar að líða! Eins og að drekka vatn haha djók...En um helgina þá fóru gjörsamlega allir til Reykjavíkur nema ég auðvitað, þurfti á vinnu að halda, svo ég geti keypt jólagjafir hehe og Aníta var líka hér heima að vinna, bara í hinu bakaríinu haha J En á föstudaginn þá fór ég með familiunni niðrí krá að mála og um kvöldið þá fór ég á rúntin með Söru Ósk og kíkti svo heim til Írenu, þar var eitthvað party, eina edrú manneskjan það var samt bara fínt Á laugardaginn fór ég í vinnu og svo að gera ekki neitt útaf mikillu þreytu og var sofnuð um 9  hálf 10 leytið jeeeeebb á laugardagskvöldi. Á sunnudaginn fór ég með Lovísu á Astrópíu sem mér fannst bara fín, margir að tala um hvað hún var leiðileg. Og um kvöldið kom Hjálmar heim og þá var tekið spólu og kúrað  

En ég ákvað að blogga því ég hef ekki gert það í langan tíma ! Hef samt verið dugleg að seta inn myndir sem er frekar tímafrekt híhíJ 

Næsta föstudag erum við víst að fara keppa í rvk og komum um kvöldið Akkurat þegar vetrafríið er! geggjó

En já verður þetta niðrí pippkró næsta laugardag? Stelpur
djamma
þá?

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 21:42:32 / sneeze

=)

Ég ákvað að koma með smá færslu hér inn því það nennir enginn að blogga
Síðustu dagar eru bara búnir að fara í að læra undir próf, auðvitað þurftu allir kennararnir að setja prófinu á sama tíma og er ég búin að vera í  tveimur prófum á dag í síðustu viku, ekkert sérlega gaman.
Síðasta helgi var mjög skemmtileg,  hittumst heima hjá Gaua og þar voru Hann og Elísabet og þar hittumst við allar vilberg stelpurnar og fórum síðan á  Verlunnarmannamatinn/ballið og var það rosalega skemmtilegt, þar til ég var rekin út :( ekkert rosalega skemmtilegt,
 slapp samt einu sinni og er ég voðalega stolt af því, voru geðveikt margir þarna undir aldri. Frekar leiðinlegt að vera rekin af fyrsta og síðasta ballinu sem maður fer á í þessari blessuðu höll, er ekki búið að fá leyfi fyrir meiru.
Núna stelpur er komið að því að skipurleggja þessa bústaðaferð erum búnar að vera að því í 4 mánuði, þetta gengur ekki lengur.

En ég verð að koma með eitt, er búin að sjá á svo mörgum síðum að stelpur skrifa HREYN með y og það á að skrifa Hrein, djöfull fer þetta í taugarnar á mér híhí..

Hef bara ekkert að blogga um þannig ég set bara fallega mynd af okkur hérna..



Rosalega sæta ;* Klárlega náttúrleg fegurð!


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 12:05:54 / sneeze

Afmælisbarn

Hún Lovísa okkar á afmæli þennan merkisdag 2. október :lol:

Núna er hún loksins hætt að vera 15 ára lítil stelpa og er orðin 16 ! Fer að læra á bíl og svona :haha:

Ætlaði bara að óska þér aftur til hamingju með afmælið dúllan mín og ég hlakka til að koma í köku eftir skóla .. Love you ;*

Þín bestasta vinkona, Andrea (og restin af okkur)

sætust ;*

 


» 21 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 20:08:23 / Lovísa

Steeelpur...

Hey stelpur 5 október þá hérna verða bara Við og Trillurnar, ENGAR stelpur frá reykjavík eða neitt þetta verður bara gaman, var bara búin að fá leyfi fyrir okkur.

Kv. Lovísa



» 3 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 21:49:52 / Andrea..

Stelpur mínar

Hvernig væri nú að skrifa nokkrar línur hérna. Ég hef ekki gert það virkilega lengi og ég gerði meira að segja vitlaust lykilorð og það hérna inná, þá á maður sko að fara að taka sig á :lol:

En ég nenni ekkert að skrifa mikið..lífið komið í sömu rútínu og alltaf. Allt á fullu í handboltanum núna sem er bara gaman og allt brjálað að gera í skólanum líka. Loksins að koma helgi á morgun. Almennileg fríhelgi, god hvað það verður gott, enginn vinna, enginn handbolti, eitt djamm og eitt kósýkvöld. Þannig er allavega planið. FÍV Cup á morgun, vonandi sem flestir taki þátt í því bara þótt við séum nú ekki að fara að gera það, svo á að vera eitthvað eftir það niðró Kró en það kemur bara í ljós. Það er allavega eitthvað :)

Spurning hvar við eigum að byrja á morgun stelpur?
Allavega er komið gott plan fyrir næstu helgar! Hvað er samt eiginlega langt síðan við hittumst allar og gerðum eitthvað. Ef ég væri ekki alltaf með ykkur í tímum og á æfingum myndi ég ekkert þekkja ykkur, nema kannski Lovísu. En svona er þetta, kærastarnir stela okkur frá hvor annari :klikk:
Vil samt þakka fyrir skemmtilegt sumar og Þjóðhátíðina.. Hún var best!! Næsta sumar verður samt ennþá skemmtilegra, held ég. Skemmtilegri vinna, vonandi saman út og svona.

Á ég að vera sniðug og segja svona í stuttu máli hvað er að frétta af okkur í augnablikinu:

Aníta :Hún er bara á fullu í skólanum og á æfingum. Er annars bara með kæró held ég og er öfga hamingjusöm. Verð að viðurkenna að hún er langblautust af okkur og er orðin full allar helgar 8| neeeii ég segi svona en hún á alltaf nóg af tyggjói og ánægð með lífið.

Eva María: Hún er eins og við allar svaka dugleg í skólanum og á æfingum. Og eins og við flestar alltaf hangsandi með kærastanum. Hún kom einmitt frá Tenerife fyrir nokkru síðan er auðvitað þvílíkt brún og sæt. Hún er alltaf hlægjandi en hláturinn er eitthvað fyrir henni þessi dagana, hún veit ekki alveg hvernig hún vill hafa þetta. Eva mín farðu svo að setja inn myndirnar frá Tenerife !! ;) Súper plús stelpa :haha:

 

Lovísa: Hún er líka dugleg í skólanum og æfingum og svona. Hún er alltaf í nýju tölvunni sinni og er ekkert lítið sátt með hana, nei smá djók. Hún er alltaf jafn skemmtileg og glöð með lífið með Jóa sínum. Hún er símafélagi minn á daginn og ég þakka hennar fyrir að koma í veg fyrir að mér leiðist á daginn oft á tíðum. Hún er ekkert smá dugleg að vinna og er alltaf í vinnu um helgar stelpan:lol:

Kristín Erna: Hún er ennþá í fótboltanum og er algjör skólanördi :P Er það ekki Kristín?? Annars er hún að standa sig með prýði í öllu sem hún gerir. Það sem hún gerir á daginn er að spila bubble struggle (sem hún btw sökkar í og ég er miklu betri..ekki?). Við þurfum að fara að finna einhvern strák handa henni hún er farin að spila svo mikið :D Hún er byrjuð í ökutímum og er ábyggilega hörkudriver.Alltaf jafn fyndin og skemmtileg, uppáhaldsfrænkan mín :haha: íí

Andrea (ég):
Ég er líka í handboltanum og á fullu í skólanum. Þvílík hamingjusöm með lífið, eyði flestöllum stundum mínum með Bjarka og finnst mér það bara gaman. Ég eiginlega veit ekkert hvað ég á að skrifa um sjálfa mig þannig ég sleppi því bara :D

-
Ég ætla ekkert að hafa þetta lengra
Gefið mér svo nokkur komment svo maður nenni þessu nú
Kristín bloggaðu svo næst og ekki hætta við..okey???
-
Andrea

» 9 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 21:21:58 / Lovísa

Sæl !

 

Komiði sæl, aldrei neitt um að vera á þessari síðu, þess vegna ætla ég að koma með smá blogg hérna. Ætti nú reyndar að vera að læra þar sem ég kann ekki þessa blessuðu stærðfræði sem Óli Týr setti fyrir. En nóg um það. Síðasta ball eða busaballið var alls ekki skemmtilegt mættu 20 manns á það án djóks, frekar lélegt en svitabandið stútaði því algjörlega. Fannst þeir bara alls ekki góðir. Vonandi verður það skemmtilegra næst eða ég veit að það verður skemmtilegra þar sem Dj Óli Geir verður. Einhvernveginn finnst mér skemmtilegra að skemmta mér við dj heldur en hljómsveitir, fer reyndar eftir því hvaða hljómsveit er, vonandi kemur bara Ultra mega tecnobandið Stefán bráðum vá það væri svo mikil snilld :D, annars finnst mér Halli Páls og þau í nemendaráði bara standa sig með stakri príði. Vonandi verðum við samt ekki uppá landi að keppa þegar þessu böll verða, annars verð ég brjáluð.. neinei segi svona.. Skólinn er líka byrjaður á fullu þannig að ekki er mikið á þessari síðu núna, fer samt að koma myndir frá Tenerife frá Evu svo eitthvað frá ballinu en samt voða fáar myndir, erum alls ekki góðar í því að nota myndavélina. Enda vorum við bara alltaf með eina myndavel en þetta er orðið skárra núna erum komnar með tvær þannig vonast ég bara til að komi fleiri og fjölbreyttari myndir á þessa blessuðu síðu.
Jæja nenni ekki að skrifa meira var bara orðin leið á Busablogginu


 

Ég er ekki frá því að mér finnist þetta fyrirbæri krúttlegt.. :D veit eki hvort þetta sé stelpa eða strákur,
þetta er örugglega strákur getur ekki verið annað

En eitt hvað segiði um 5 okt við og trillurnar?


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.08.2007 20:46:15 / Eva María

Busi!

Nú er þetta búið, loksins!  Það var orðið þreytandi að rembast við að taka þenna túss af sér, sérstaklega rauða tússinn. Mér er frekar svona illt í andlitinu rauð og mér svíður smá hehe En samt fannst mér mjög gaman í gær,  fyrir utan reyndar eggin, remolaðið, sírópið og já hveitið , en sumir fóru í ógeðiskarið þar á meðal Hjálmar, angar enn af viðurstyggð neeei segi svona.. Dröfn fór held ég líka haha af stelpunum. En í dag var klínt á okkur skósvörtu sem manni sveið fjandi mikið af en svo var látið okkur skríða og það var ekki gaman er með mörg brunasár á tánum L, svo var okkur hent í e-ð horn og fengum við ekkert að sjá og allir í kremju og kafna úr hita en það var alveg fínt he. Svo var kallað upp og það... en svo fórum við í smúlið.. sem var heavy gaman, bara soldið kalt :D Nokkrar myndir af því eru á suðurland.is.. læt einhverjar myndir fylgja með blogginu. En annars þá líst mér bara vel á þennan skóla, fínt að vera komin aftur í skóla og fá reglu á lífið, eftir þjóðhátíðina var ég bara félagslega einangruð og stelpurnar líka held ég , var bara heima svaf langt fram á dag og bora í nefið... en nú er skólin byrjaður þannig við hittumst allar miklu oftar  en jáá  handboltin er byrjaður sem er fínt, fá smá hreyfingu.

En af mér er ekkert mikið að frétta bara þetta venjulega.

Á miðvikudaginn förum við fjölskyldan til tenerife í viku, ýkt spennt nema missi af bussaballinu :/ sem er glatað en það kemur annað ball á eftir þessu :)

 


Svarti listinn










Þetta er komið gott
Eva María


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.08.2007 16:41:42 / sneeze

Hún á afmæli í dag ;)

Í dag 19. Ágúst á hún Kristín Erna afmæli, orðin 16 ára  :D

Viljum við óska henni innilega til hamingju með afmælið og eigðu góðan dag sætust :**




Þínar vinkonur
Andrea, Aníta, Eva María og Lovísa ;)




 

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 19:54:21 / Lovísa

International - Páll Óskar

Sæl veriði, langt síðan maður hefur kíkt og gert eitthvað á þessa blessuðu síðu.
Enda er kominn tími á það, kannski gera nýtt um okkur og fleira. En því miður voru engar myndir teknar á þjóðhátíðinni því við nenntum enganvegin að vera með myndavélina.
En þessi vika eftir þjóð hefur bara verið róleg, hef varla farið útúr húsi nema að fara í vinnu og skreppa í sjoppu annars bara heima að hjúkra Jóa. Er öruggleg búin að horfa á allar myndir sem til eru heima en nóg um það, jii hvað mér hlakkar til að lifa eðlilegur lífi aftur ekki sofa alltaf til 4 og skemma allann daginn.. verður erfitt að snúa þessu við aftur.



Þessi þjóðhátíð var ein sú skemmtilegasta sem ég hef uppplifað. Fengum að heyra frá Toby að við værum flottastar og bað hann um að fara í peysunum okkar uppá svið en þær pössuðu ekki á hann. Vorum heavy sáttar með peysurnar allavega, verðum vonandi enn flottari næsta ár.

 

 

Nákvæmlega 354 dagar í næstu :D íjjj

Við sjáumst
                 Lovísa 


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.07.2007 21:55:28 / sneeze

ÞJÓÓÓÓÓÐHÁTÍÐ !!!!

 

ÞAÐ ERU 5 DAGAR Í

ÞJÓÐHÁTÍÐ

 

4 Í HÚKKARABALLIÐ

 

Skemmtilegasta vika og helgi ársins framundan :haha:

 

   

Sjáumst í dalnum ! :lol:

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 17:25:27 / Andrea..

Þetta gengur ekki

Af hverju nennir allt í einu enginn að blogga hér...ég nenni því ekki einusinni sjálf!

Ætla bara að skrifa smá því það er meira en mánuður síðan það kom hér blogg, áður en skólinn kláraðist held ég. Annars hefur alveg fullt gerst frá því þá. Vorum að vinna bara í vinnsló ég, Eva og Lovísa. Aníta og Kristín í krikjugarðinum. Fórum síðan allar út til Svíþjóðar nema Kristín fyrir stuttu. Eftir það erum ég, Kristín og Lovísa að vinna hjá ÍBV, Aníta í kirkjó og Eva greyið er enn að rotna í vinnslustöðinni! Vá hvað ég ætla aldrei að vinna þar aftur.

Annars er búið að vera geðveikt veður hérna heima ég veit ekki hvað lengi. Sem er yndislegt 0 Svo ætlum við Bjarki til rvk um helgina og keyra svo í bústað á sunnudaginn og koma heim þegar við nennum.. hlakka til að komast eitthvað út á land og gera ekkert nema slappa af 0 Síðan klárast vinnan í næstu viku held ég og ég verð í fríi þangað til skólinn byrjar. Þannig það er bara að rætast úr þessu sumri, væri reyndar til í að fara út eins og til stóð..en svona er lífið og það koma upp hlutir sem maður býst enganveginn við!! En í því máli skiptir mig engu að við förum ekki!!

Svo er bara að koma ÞJÓÐHÁTÍÐ!!! ég er ekki að ná því! Það veður svo gaaaaaaaaman og mér er farið að hlakka svo til, fullt af dóti komið niðrí dal og svona þá fattar maður hvað er stutt í þetta 0 Peysurnar/jakkarnir okkar eru komnar á hreint og ég er þvílíkt ánægð með þetta. Miklu þægilegra og flottara (ef þetta kemur út eins og við viljum) heldur en í fyrra!

En já ég ætlaði ekkert að skrifa mikið..setti inn myndir frá því á laugardaginn. Tókum reyndar engar heima hjá Gígju. Síðan á eftir að setja mínar myndir inn frá Svíþjóð, það má einhver annar gera það.

Andrea


» 9 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 20:22:26 / sneeze

Lífið er yndislegt!!



» 6 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 19:53:49 / sneeze

Skólaferðalag aldarinnar!

Jæja ætli það sé ekki komin tími á blogg á þessa síðu og þá sérstaklega frá mér. Á síðasta miðvikudag fórum við í eitt alleiðinlegasta skóleferðalag sem hægt er að hugsa sér. Það byrjaði reyndar ágætilega , mættum í herjólf á miðvikudagsmorgun og keyrðum svo eitthvert á Suðurlandinu. Fórum svo í river rafting sem var geðveikt stuð. Þar sem ég var aðal bjargvætturinn verð ég nú að segja frá því þegar ég bjargaði Árinni hennar Elísu. Elísa missti árina sína og þegar ég sá hana fljóta þarna, stóð ég upp og stökk út í ískalt vatnið8|. Synti nokkra metra og náði árinni og synti til baka. Þegar ég kom upp úr vatninu hélt ég að ég væri að fá kuldakast(enda búin að synda soldið langt:haha:.) en já allaveganna var ég kölluð bjargvætturinn, veit ekki alveg hvers vegna.. Eftir kuldann hlökkuðu allir til að koma sér fyrir, héldum að við myndum nú gista á hóteli eða e-ð en NEI gistum í ógeðis hesthúsi á meðan strákarnir gistu í lúxus bústað með pott og öllu. Þar að auki fylgdi köttur með hesthúsinu!!:klikk:

 


Ógeðslega fjósið! Hlaða, hestaæfingasvæði og já svokallað gistiheimili allt í sama húsinu.

Svaka sætar í þessu

Daginn eftir vöknuðum við snemma og héldum að við værum að fara gera e-ð svaka skemmtó, það sem átti víst að vera skemmtlegt fyrir krakka á þessum aldri var hellaskoðun vúú. löbbuðum gegn einhvern svaka hellir og ég var ógeðslega skítug eftir að labba í gegn:cry:. við keyrðum svo til Hveragerðis til að fara í einhverja "survivor keppni" eða svokallaðann ratleik. hlupum um allt Hveragerði til sjóða egg m.a.! Ég var að deyja mig hlakkaði svo til að komast heim úr hestafýlunni og frá kettinum sérstaklega. Um kvöldið fórum við svo í bíó og sund.

Ég hef allavega aldrei upplifað neitt jafn leiðinlegt, veit að margir eru á sömu skoðun. Félagsskapurinn var eina skemmtilega við ferðina..

Á fimmtudaginn fengu svo allir út úr samræmdu og gekk mér bara ágætilega, náði allaveganna öllu og líka stelpurnar. Þannig að ég var bara nokkuð sátt. Held að ég hafi ekki mikið meira að segja, langaði bara koma á framfæri hvað skólaferðalagið hafi verið yndælis skemmtilegt!:haha:

-Kristín kveður ekki sátt


» 14 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 17:51:18 / Lovísa

=)

Jájájá komiði sææl.. Landsmenn.. til sjávar og meee..sveita!

Ætla að koma með smá hérna inní
Hún Aníta okkar á afmæli í dag 23. maí og vilju við óska henni til hamingju með það ;**
Farðu vel með þig sætust :*

Langt síðan síðast en það er núna held ég komið að mér að blogga, líka af því við erum búnar að vera duglegar að taka myndir og svona, mikið var.

Skólinn fer að klárast bráðum, svo asnalegt að halda okkur endalaust þarna, erum bara eins og litlu krakkarnir að leika okkur og gera ekki neitt, skil enganveginn tilganginn í sambandi við það. Framhaldskólarnir löngu búnir. Og alveg 2 vikur eftir að skólanum held ég, en ég held að það reddi þessu bara að það er skólaferðalag núna á Þriðjudaginn eða Miðvikudaginn svo við þurfum ekki að vera lengur í skólanum og þá eru nokkrir dagar eftir bara, verður vonandi skemmtilegt í skólaferðalaginu, þarf bara rétta hugafarið þá verður þetta gaman. Finnst frekar lélegt hjá fólki að fara ekki í það, vegna þess að þetta er svona síðasta skiptið sem við verðum öll saman, þar sem sumir eru að fara uppá land og finnst mér að allir eigi að skella sér með.
  En síðustu dagar eftir Samrændu eru bara búnir að vera mjög þægilegir, lokaprófin eru á morgun og hinn þá er þetta bara allt búið, mikið var. Var að heyra að  það væri hægt að fá útúr samrændu í næstu viku sem verður vonandi, smá stress að fá útúr þessu en þetta kemur bara í ljós. Vonandi nær maður öllu, smá efi í gangi samt. 
Hrafnaklettar voru þar síðustu helgi og fannst mér bara ágætt þar, ýmsar skoðannir samt á því. Svo var ball síðustu helgi, eða lokaball fív og held ég að allir hefðu komist inná það enda var komin tími til að hleypa okkur inná þessi böll.
 Og var það mjög skemmtilegt  mínus drama og þannig dót.


Það munaði svo litlu..Haha ;*

En stelpur kominn tími á að fara að klára þetta með búningavesenið, ætlum ekki að vera eins og í fyrra að gera þetta á síðustu stundu, tölum bara um þetta betur í skólanum morgun..



Svo eru myndir hér  til síðan um helgina og líka síðan á hrafnaklettum í myndir 2007 endilega skoðið ;)
 
Komið nóg bara nenni ekki meir, sjáumst ;*

-Lovísa


» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Klukkan